The Dark Edit
Dökkir tónar, óvenjuleg form og skart sem fangar athyglina. Uppgötvaðu úrval af skartgripum sem passa fullkomlega við stemningu hrekkjavökunnar.
Feðradagurinn
Á feðradaginn heiðrum við feður og þá sem hafa gegnt mikilvægu hlutverki í lífi okkar. Hvort sem það er með fallegri gjöf eða hlýlegri hugsun er dagurinn tilefni til að sýna þakklæti og minnast góðra stunda.
Skoðaðu eftir flokkum
As seen in
Aurum í sviðsljósinu
Það gleður okkur að sjá skart frá Aurum prýða fólk á eftirminnilegum stundum, hvort sem er á rauða dreglinum eða í daglegu lífi.
Yfir 260.000 ánægðir viðskiptavinir um allan heim síðan 1999
Fá innblástur
Ráðgjöf í verslun
Bókaðu tíma hjá einum af sérfræðingum okkar og skoðaðu úrval Aurum af trúlofunar- og giftingarhringum í verslun okkar í Bankastræti. Við veitum þér persónulega ráðgjöf og aðstoðum þig við að finna hringinn sem hentar þér.
Sérhannaðir skartgripir
Fáðu Guðbjörgu, yfirhönnuð Aurum, til að skapa einstakan skartgrip fyrir þitt sérstaka tilefni.
Í fararbroddi sjálfbærrar skartgripagerðar
Sjálfbærni er órjúfanlegur hluti af gildum Aurum.
Helstu áherslur okkar eru:
- Við notum eingöngu endurunnið gull og silfur og höfum gert það í yfir 25 ár.
- Við notum eingöngu rannsóknarræktaða demanta frá aðilum sem eru meðlimir í Responsible Jewellery Council.
- Skartgripum okkar er pakkað í sjálfbæran pappír úr mórberjatrjám, sem er framleiddur án þess að fella trén.
Umhverfisvernd er þó aðeins einn þáttur í samfélagslegri ábyrgð Aurum. Við eigum bæði langtímasamstarf og tímabundið samstarf við fjölmörg góðgerðarfélög og félagasamtök.
Fimm ára ábyrgð
Við stöndum við bakið á hverjum einasta skartgrip sem við seljum. Ef skartgripurinn þinn þarfnast viðgerðar getur þú sent hann til okkar. Við gerum við hann eða afhendum þér nýjan skartgrip þér að kostnaðarlausu innan fimm ára ábyrgðartímabilsins.