Guðbjörg, hönnuður Aurum.

Skart með sögu

Allir skartgripir Aurum eru hannaðir af Guðbjörgu Kr. Ingvarsdóttur og sækja innblástur í íslenska náttúru. Í hönnun hennar mætast tímalaus fegurð og vandað handverk. Hver hringur er smíðaður af alúð til að verða dýrmætt tákn um ástina og fylgja kynslóðum.

Hvort sem þú velur skartgrip úr safninu okkar eða lætur okkur sérsmíða eftir þínum óskum, er markmiðið að skapa skart sem hefur sérstaka þýðingu fyrir þig og gleður um ókomin ár.

Handsmíðað á Íslandi • Áletrun án endurgjalds •

Trúlofunarhringar

Trúlofunarhringur er tákn um ástina, ykkar sögu og lífið sem þið byggið saman.

Hjá Aurum finnur þú tímalausa trúlofunarhringa með vandlega völdum demöntum ræktuðum á rannsóknarstofu. Hver hringur er smíðaður af alúð, með áherslu á vönduð vinnubrögð og falleg smáatriði. Úrvalið nær frá sígildum hringum með einum demanti til mjúkra, lífrænna forma sem sækja innblástur í náttúruna.

Ertu með ákveðinn draumahring í huga? Við bjóðum einnig upp á sérsmíði og aðstoðum þig við að útfæra hugmyndina að þínum óskum.

Demantar sem gleðja um ókomin ár

Leyfðu demöntunum að njóta sín. Demantsskartið okkar er smíðað af alúð á Íslandi með demöntum ræktuðum á rannsóknarstofu, þar sem tímalaus fegurð og sjálfbærni eru höfð að leiðarljósi.

Frí áletrun

Gerðu skartgripinn persónulegan með fallegri áletrun.

Útfært að þínum óskum

Ertu að leita að einhverju einstöku? Hægt er að útfæra marga skartgripina okkar að þínum óskum, svo þeir endurspegli þinn stíl og sögu.

Bókaðu tíma í ráðgjöf

Bókaðu persónulega ráðgjöf hjá okkur í verslun eða á netinu. Við aðstoðum þig við að velja eða skapa skartgrip sem endurspeglar þinn stíl og óskir.



Giftingahringir

Giftingarhringar fylgja ykkur á hverjum degi sem tákn um ástina og lífið sem þið byggið saman. Hringarnir okkar eru tímalausir, þægilegir og vandlega smíðaðir, hvort sem þeir eru bornir einir eða með trúlofunarhring.

Hannaðir af alúð til að fylgja ykkur um ókomin ár.

Morgungjafir

Falleg morgungjöf verður dýrmæt minning um brúðkaupsdaginn.

Hjá okkur finnur þú tímalaus hálsmen, armbönd og hringa sem gleðja á þessum sérstaka degi og um ókomin ár. Hægt er að áletra marga skartgripina okkar með upphafsstöfum, dagsetningu eða persónulegri kveðju og gefa gjöfinni þannig enn meiri þýðingu.

Skart fyrir brúðkaupsdaginn

Fallegt skart setur lokapunktinn á brúðkaupsútlitið. Hvort sem þú leitar að fíngerðum perlueyrnalokkum, sígildum demantsskartgripum eða glæsilegu gullskarti, finnur þú í brúðarskartinu okkar skartgripi sem falla að þínum stíl.

Tímalaus hönnunin gerir skartið að dýrmætri minningu um daginn sem þú getur borið og notið um ókomin ár.

Skapaðu eitthvað einstakt og persónulegt

Ertu að leita að einhverju einstöku?

Við bjóðum upp á persónulega ráðgjöf við val á trúlofunarhringum, giftingarhringum og sérsmíðuðu brúðarskarti. Saman getum við útfært hönnun úr safninu okkar að ykkar óskum eða skapað nýjan skartgrip sem endurspeglar ykkar sögu og stíl.

„Falleg og fíngerð hönnun sem býr jafnframt yfir miklum krafti. Allt sem ég pantaði stóðst væntingar mínar og var jafnvel enn fallegra í raunveruleikanum, þar sem handbragðið og smáatriðin í silfursmíðinni fá svo sannarlega að njóta sín. Verslunarupplifunin var einstaklega ánægjuleg og fallegar, frumlegar umbúðir settu punktinn yfir i-ið. Ég mun án efa versla hér aftur!“

- M.

„Ég pantaði trúlofunarhringinn minn hjá Aurum í sumar. Ég heillaðist strax af einstakri og glæsilegri hönnuninni á vefsíðunni þeirra og hringurinn reyndist jafnvel enn fallegri í raunveruleikanum! Ég gæti ekki verið ánægðari og hlakka mikið til að panta giftingarhringana okkar hjá Aurum líka!“

- B. D. 

„Ég hef verslað margoft hjá Aurum, meðal annars giftingarhringana okkar, og upplifun mín hefur í alla staði verið frábær. Þjónustan er einstaklega góð og starfsfólkið hjálpaði okkur að finna réttar hringastærðir og svaraði öllum spurningum okkar af alúð.

Skartgripirnir eru stórkostlegir, með einstaka hönnun sem sker sig úr. Ég er eiginlega hálftregur til að segja of mörgum frá Aurum, því mér finnst svo sérstakt að eiga skartgripi sem maður sér ekki á hverjum degi! Allar pantanir hafa verið afgreiddar og sendar hratt og hver einasti skartgripur sem ég hef keypt hefur verið fallegur og einstaklega vel unninn. Ég mæli heilshugar með Aurum!“

- M. T.

„Ég pantaði giftingarhring með áletrun handa eiginmanni mínum í tilefni af 19 ára brúðkaupsafmæli okkar. Ég heillaðist af fjölbreyttri og einstakri hönnun Aurum, auk áherslunnar á sjálfbærni og ábyrga framleiðslu. Fyrir valinu varð Swan-hringurinn úr gulu gulli og ég gæti ekki verið ánægðari! Stærðin passaði fullkomlega, hringurinn barst fljótt og er einstaklega fallegur. Eiginmaður minn er í skýjunum með hann! Ég mæli svo sannarlega með því að versla hjá Aurum."

- M. J.

„Upplifun okkar af Aurum by Guðbjörg hefur verið FRÁBÆR! Við keyptum giftingarhringana okkar hjá Aurum og erum einstaklega ánægð með allt ferlið. Handverkið er vandað, þjónustan framúrskarandi og afgreiðslan bæði hröð og skilvirk. Við þurftum að láta breyta stærðinni á hringunum okkar og Vlada var einstaklega hjálpsöm, kurteis og þægileg í öllum samskiptum frá upphafi til enda. Við mælum hiklaust með Aurum og munum svo sannarlega versla þar aftur!“

- A. E. 

„Ég er algjörlega ástfangin af trúlofunarhringjunum okkar! Þeir eru jafnvel enn fallegri í raunveruleikanum. Hönnunin er einstaklega fáguð og handverkið vandað. Það er næstum eins og Guðbjörg hafi séð draumahringana okkar fyrir sér þegar hún hannaði þá! Hringarnir bárust ótrúlega fljótt og umbúðirnar eru hreinasta listaverk. Allt er svo fallega úthugsað, niður í minnstu smáatriði.“

- D. D.

Auðveld sending og skil

Við bjóðum upp á hraða afhendingu og einföld skil svo þú getir verslað áhyggjulaust. Við pökkum hverri pöntun af alúð í fallegar gjafaumbúðir, svo hún sé tilbúin til að gleðja þann sem fær hana.

5 ára ábyrgð og ævilöng viðgerðarþjónusta.

Hver skartgripur frá Aurum er hannaður og handunninn til að endast. Ef þörf er á viðgerð erum við ávallt tilbúin að aðstoða, enda trúum við því að fallegir skartgripir eigi að endast alla ævi.

Gjafakort

Gefðu persónulega gjöf. Með gjafakorti frá Aurum geta ástvinir þínir valið sér skartgrip sem endurspeglar þeirra eigin stíl og persónuleika.

Sjálfbærni er órjúfanlegur hluti af starfsemi okkar.

Hver skartgripur frá Aurum er handunninn af alúð á Íslandi úr endurunnum eðalmálmum og gimsteinum sem aflað er með ábyrgum hætti.

Við leggjum áherslu á tímalausa hönnun og vandað handverk þar sem virðing fyrir náttúrunni og þeim sem bera skartgripina okkar er höfð að leiðarljósi.

×