Sendingar, skil og endurgreiðslur
Við viljum að það sé einfalt og þægilegt að versla hjá Aurum. Hér finnur þú allar helstu upplýsingar um sendingar, skil, skipti og endurgreiðslur.
Sendingar innan Íslands
Pantanir innan Íslands eru sendar með Dropp.
-
Frí sending í Dropp Box þegar verslað er fyrir 25.000 kr. eða meira.
-
Vinsamlegast gerðu ráð fyrir 1–2 virkum dögum í vinnslu áður en pöntun er send.
-
Þegar pöntunin hefur verið send færðu tölvupóst með sendingarnúmeri svo þú getir fylgst með stöðu hennar.
Lengri vinnslutími getur átt við um sérsmíðaða skartgripi og vörur sem þarf að útbúa eða breyta sérstaklega.
Sendingar til útlanda
Pantanir til útlanda eru sendar með DHL Express.
Ókeypis DHL-sending er í boði þegar verslað er fyrir 220 Bandaríkjadali eða meira. Fyrir pantanir undir þeirri upphæð er fast sendingargjald 25 Bandaríkjadalir.
Viðtakandi ber ábyrgð á þeim innflutningsgjöldum, sköttum og tollum sem kunna að falla á pöntunina í viðtökulandi.
Skil og skipti
Aurum býður 30 daga skila- og skiptifrest á vörum sem keyptar eru í netverslun okkar.
Ef þú vilt skila vöru, skipta henni eða óska eftir stærðarbreytingu skaltu hafa samband við okkur á customercare@aurum.is. Við sendum þér þá allar nauðsynlegar leiðbeiningar.
Viðskiptavinur ber kostnað af því að koma vörunni til Aurum, nema um gallaða vöru sé að ræða eða annað hafi verið samþykkt sérstaklega.
Réttur til að hætta við netkaup
Samkvæmt lögum hefur þú 14 daga frá því að þú færð vöruna afhenta til að tilkynna okkur að þú viljir hætta við kaupin. Þú þarft ekki að gefa upp ástæðu.
Tilkynninguna má senda á customercare@aurum.is eða í pósti til:
Aurum ehf.
Bankastræti 4
101 Reykjavík
Sími: +354 551 2770
Þú getur tilkynnt skil með tölvupósti eða notað staðlað skilaeyðublað.
Eftir að tilkynning hefur verið send skal skila vörunni til okkar innan 14 daga.
Ástand vöru við skil
Þér er velkomið að skoða og prófa vöruna á sama hátt og þú myndir gera í verslun.
Ef varan hefur verið meðhöndluð umfram það sem nauðsynlegt er til að staðfesta eiginleika hennar og verðgildi hennar hefur rýrnað getur það haft áhrif á endurgreiðsluna.
Endurgreiðsla
Endurgreiðsla fer fram með sama greiðslumáta og notaður var við kaupin, nema samið sé um annað.
Endurgreiðslan fer fram eins fljótt og hægt er og eigi síðar en 14 dögum eftir að okkur berst tilkynning um að hætt sé við kaupin. Okkur er þó heimilt að bíða með endurgreiðsluna þar til varan hefur borist eða staðfesting á endursendingu liggur fyrir.
Ef allri pöntuninni er skilað er ódýrasti almenni sendingarkosturinn sem var í boði við kaupin einnig endurgreiddur. Viðskiptavinur greiðir sjálfur kostnaðinn við að senda vöruna til baka.
Sérsmíðaðir og ágrafnir skartgripir
Ekki er hægt að skila skartgripum sem hafa verið sérsmíðaðir eða sérsniðnir fyrir viðskiptavin, til dæmis með áletrun eða ágröfnum persónulegum upplýsingum.
Þetta á þó ekki við ef varan reynist gölluð.
Stærðarbreytingar
Við bjóðum upp á stærðarbreytingu án endurgjalds. Hafðu samband við okkur á customercare@aurum.is og við aðstoðum þig með næstu skref.
Vörur keyptar í verslun
Vörum sem keyptar eru í verslun Aurum að Bankastræti 4 má skipta eða skila gegn inneign innan 30 daga.
Kaup í verslun eru ekki endurgreidd nema lögbundinn réttur til endurgreiðslu sé fyrir hendi, til dæmis vegna galla á vöru.
Gallaðar vörur
Ef vara reynist gölluð biðjum við þig um að hafa samband við okkur á customercare@aurum.is. Gott er að láta pöntunarnúmer og myndir af vörunni fylgja svo við getum aðstoðað eins fljótt og auðið er.
Ef um galla er að ræða getur þú, eftir aðstæðum, átt rétt á viðgerð, nýrri vöru, afslætti eða endurgreiðslu samkvæmt lögum um neytendakaup.
Almennur frestur til að tilkynna um galla er tvö ár frá afhendingu vörunnar en fimm ár þegar vörunni er ætlaður verulega lengri endingartími.
Aurum veitir jafnframt fimm ára ábyrgð á skartgripum sínum. Sú ábyrgð kemur til viðbótar lögbundnum réttindum viðskiptavina og takmarkar þau ekki.
Ef upp kemur ágreiningur
Við leggjum okkur fram um að leysa öll mál með viðskiptavinum okkar á sanngjarnan og farsælan hátt.
Ef ekki tekst að finna lausn er hægt að bera málið undir Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa. Nánari upplýsingar og rafræna kærugátt má finna á island.is.