Gjafir sem gleðja • Handsmíðað á Íslandi •

11.11 í aðeins einn dag

Í tilefni 11.11 bjóðum við 22% afslátt af völdum skartgripum, eingöngu í netverslun Aurum.

Auk þess færðu rafrænt gjafabréf með kaupum:

  • Verslaðu fyrir 35.000 kr. eða meira og fáðu 3.000 kr. gjafabréf.
  • Verslaðu fyrir 70.000 kr. eða meira og fáðu 6.000 kr. gjafabréf.
  • Verslaðu fyrir 120.000 kr. eða meira og fáðu 12.000 kr. gjafabréf.

Skilmálar

22% afslátturinn gildir ekki af gull- og demantsskartgripum (Fine Jewelry) eða sérsmíðuðum skartgripum. Gjafabréf fylgja kaupum sem ná tilgreindum upphæðum, þar með talið kaupum á gull- og demantsskartgripum, og eru gefin út eftir að kaupum lýkur.

Aðeins eitt gjafabréf fylgir hverri pöntun og miðast upphæð þess við endanlegt kaupverð eftir afslátt. Gjafabréfin gilda í 3 mánuði frá útgáfudegi og má nota við næstu kaup.

Ekki er hægt að sameina tilboðið við aðra afslætti eða tilboð.

Tilboðið gildir eingöngu í netverslun Aurum þann 11. nóvember 2026.

Gjafir fyrir hana

Gefðu henni eitthvað einstakt um jólin. Skartgrip sem hún mun halda upp á um ókomin ár. Hver skartgripur er handsmíðaður á Íslandi af alúð, með áherslu á tímalausa hönnun og persónulegt gildi.

Tímalausir demantar

Jólin eru tími ljóss og hátíðleika og fullkomið tilefni til að skarta einhverju einstöku. Demantsskartgripirnir okkar eru handsmíðaðir á Íslandi úr endurunnu gulli og lab-grown demöntum, þar sem tímalaus hönnun og ábyrgt efnisval fara saman.

Uppgötvaðu úrval demantsskartgripa sem eru tilvaldir í einstaka jólagjöf, eða til að gera hátíðirnar enn eftirminnilegri.

Gjafir fyrir hann

Gefðu honum jólagjöf sem endist um ókomin ár. Skartgripirnir okkar eru hannaðir og handsmíðaðir á Íslandi með áherslu á einfaldleika, gæði og tímalausa hönnun.

Herraskart

Herraskartið frá Aurum er hannað fyrir þá sem kunna að meta einfaldleika, gæði og tímalausan stíl. Hver skartgripur er handsmíðaður á Íslandi úr vandlega völdum efnivið, með áherslu á fallega hönnun og smáatriði sem gera hann einstakan.

Látlausir en eftirtektarverðir skartgripir sem henta jafnt hversdags sem við sérstök tilefni og endast um ókomin ár.

„Einstaklega falleg og fíngerð hönnun sem er um leið kraftmikil. Allt sem ég pantaði var nákvæmlega eins og á myndunum, en jafnvel enn fallegra í eigin persónu þegar maður sér hversu vönduð silfursmíðin er. Öll kaupupplifunin var frábær og fallegar, óvenjulegar umbúðirnar settu punktinn yfir i-ið. Ég mun svo sannarlega versla hér aftur!“

— M. C.

„Einstaklega fallegir og einstakir skartgripir. Ég elska hönnunarstílinn! Þjónustan er frábær og sendingin barst mjög fljótt. Ég mun klárlega versla aftur hjá Aurum.“

— F. S.

„Ég hef keypt nokkra skartgripi frá Aurum, þar á meðal giftingarhringana okkar, og reynsla mín hefur verið frábær í alla staði. Þjónustan hefur verið einstaklega góð, hvort sem það hefur verið að hjálpa okkur að finna réttar stærðir eða svara alls konar spurningum. Skartgripirnir eru einstaklega fallegir og ólíkir því sem maður sér annars staðar. Ég er eiginlega hálft í hvoru tregur til að segja of mörgum frá Aurum, því það er eitthvað svo sérstakt við að ganga með skartgripi sem maður sér ekki á hverjum degi. Allt er fallega pakkað inn og sent af stað mjög fljótt. Hver einasti skartgripur sem ég hef keypt hefur verið fallegur og vandaður. Ég mæli heilshugar með Aurum.“
— M. T.

Sendingar og vöruskil

Við leggjum áherslu á góða þjónustu, skjóta afgreiðslu og einföld vöruskil svo þú getir verslað með öryggi fyrir jólin. Öllum pöntunum er pakkað af alúð í fallegar gjafaumbúðir.

Allir skartgripirnir okkar eru handsmíðaðir á Íslandi og því getur tekið 2–4 vikur að útbúa og senda skartgripi sem eru ekki til á lager. Ef þú þarft að fá pöntunina fyrir ákveðinn dag mælum við með að hafa samband við okkur á customercare@aurum.is áður en pantað er til að kanna áætlaðan afhendingartíma.

5 ára ábyrgð og lífstíðarviðgerðarþjónusta

Skartgripirnir okkar eru hannaðir og handsmíðaðir til að endast. Þess vegna bjóðum við upp á 5 ára ábyrgð og viðgerðarþjónustu til lífstíðar, svo þú getir notið skartgripanna þinna um ókomin ár.

Gjafakort

Gefðu persónulega gjöf sem hittir í mark. Með gjafabréfi frá Aurum getur viðtakandinn valið sér skartgrip sem endurspeglar hans eigin smekk og stíl.

Sjálfbærni er í fyrirrúmi í öllu okkar starfi.

Hjá Aurum leggjum við áherslu á vandaða hönnun, íslenskt handverk og ábyrga nýtingu náttúruauðlinda. Hver skartgripur er handsmíðaður af alúð á Íslandi úr endurunnum góðmálmum og vandlega völdum eðalsteinum. Við trúum því að falleg hönnun eigi að endast og sköpum því tímalausa skartgripi sem hægt er að njóta um ókomin ár.

×